Legal notice

Skilmálar Sköllóttur ehf.

Sköllóttur ehf.
Kennitala: 640303-3280
Akranes, Ísland

Með því að ganga frá greiðslu samþykkir þú eftirfarandi skilmála.


Afhending og sendingarmáti

Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun, nema annað sé tekið sérstaklega fram.
Sé varan ekki til á lager verður haft samband og tilkynnt um áætlaðan afhendingartíma.

Allar sendingar eru sendar með Póstinum, og gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Póstsins um afhendingu vörunnar.
Sköllóttur ehf. ber ekki ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi eða á sendingum sem glatast eftir að þær hafa verið afhentar Póstinum.

Ef vara týnist eða skemmist í flutningi er ábyrgðin hjá kaupanda.


Verð og sendingarkostnaður

Öll verð í netversluninni eru með 24% virðisaukaskatti.
Sendingarkostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram og fer eftir verðskrá Póstsins.

Við áskiljum okkur rétt til að breyta verði vörutegunda án fyrirvara.


Skil og endurgreiðslur

Veittur er 14 daga skilaréttur frá afhendingardegi.
Til að nýta sér skilarétt þarf varan að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í upprunalegum, óopnuðum umbúðum.
Sé vara innsigluð má ekki rjúfa innsiglið.

Við skil þarf að framvísa kvittun eða sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt.
Endurgreiðsla er framkvæmd þegar varan hefur verið móttekin og staðfest í upprunalegu ástandi.
Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn eða endurgreiðsla, eftir samkomulagi.
Sköllóttur ehf. greiðir allan sendingarkostnað vegna gallaðrar vöru.


Trúnaður og persónuvernd

Sköllóttur ehf. heitir viðskiptavinum fullum trúnaði um allar upplýsingar sem gefnar eru upp í tengslum við viðskipti og skráningu.
Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila nema samkvæmt lagaskyldu eða með samþykki viðskiptavinar.

Persónuupplýsingar eru eingöngu notaðar til að vinna úr pöntunum, bæta þjónustu og halda viðskiptasambandi samkvæmt gildandi lögum um persónuvernd.
Við notum örugg greiðslugáttarkerfi og vistum ekki greiðsluupplýsingar.


Skattar og reikningar

Öll verð eru með virðisaukaskatti og reikningar eru gefnir út með VSK.
Ef um fyrirtækjakaup er að ræða skal leggja fram kennitölu við pöntun.


Lög og varnarþing

Þessir skilmálar eru samdir í samræmi við íslensk lög.
Rísi mál vegna viðskipta við Sköllóttur ehf. skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum.